Á árinu 2020 hefur heima skrifstofan fengið stærra
hlutverk, flestir eru búnir að skilgreina eitthvað svæði heima fyrir sem
vinnurými, hvort sem það er lítið horn, eldhúsborðið eða skrifstofuherbergi.
Hve stór eða lítil eða hvar skrifstofan eða vinnurýmið er
skiptir ekki öllu máli, búnaðurinn sem þú ert með er annaðhvort að fara að
hjálpa þér að vinna eða standa í vegi fyrir fjarvinnunni. Að sitja á eldhússtól
við eldhúsborðið heima er til að mynda ekki að fara að hjálpa þér að finna flæði
við vinnu. Kyrrsetan er einfaldlega of mikil og líkaminn mun kalla á breytingar
sem eldhússtóllinn hefur ekki upp á að bjóða.
Fáðu innblástur, hér að neðan eru fimm mismunandi útfærslur af skrifstofu heima, allar þessar vörur á myndum eru einungis fáanlegar í sérpöntun.
Fyrir heilsuvæna skrifstofu mælum við með Ergolift skrifborði (hægt að fá hvíta borðplötu og svarta T fætur) og Håg Futu 1200 nettum skrifborðsstól
-Kristján Andri Jóhannsson sölu- og markaðsfulltrúi EG Skrifstofuhúsgögn
Það getur verið dýrkeypt fyrir heilsuna að sitja heima í fjarvinnu á eldhússtól, þó að okkar fyrstu ráð væru að fjárfesta í alhliða skrifborðsstóll og rafmagnsborði, þá er það ekki endilega á allra færi. Hér að neðan má sjá hagstæðar lausnir sem geta komið sér vel:
360 gráðu hreyfanleiki fær þig til að virkja vöðva í baki til að halda jafnvægi, gott mótvægi við kyrrsetu og setið er hærra í uppréttri stöðu. Hægt að setja á alla venjulega stóla með nokkuð sléttri setu.
Góð tilbreyting í setustöðu, þú situr hærra en í venjulegum stól, ert í uppréttri stöðu og styrkir bak sem er gott mótvægi gegn kyrrsetu í hefðbundnari stól. Góður sem auka stóll ef þú ert með skrifborðsstól með baki.
Þessi er okkar hagstæðustu kaup sem skrifborðsstóll, stóllinn er einfaldari útgáfa af Håg stólum en engu er til sparað þegar kemur að gæðum og hönnun. 10 ára ábyrgð og þú getur búist við að nota hann í 15-20 ár.
Aðrar tillögur, notaðu vegghillu eða felliborð á vegg til
þess að standa við fartölvuna eða tölvuna, þú getur mælt hvaða hæð er
ákjósanlegust fyrir þig. Það er við olnbogahæð þegar staðið er en þó þannig að
handleggur halli aðeins niður á við. Það er strax mikill munur að geta staðið
upp við vinnu og hjálpar þér að einbeita þér að verkefnum dagsins.
Meðal stærri verkefna á árinu 2020 voru húsgögn í nýtt
húsnæði Hafrannsóknarstofnunar og í nýtt húsnæði Byggðastofnunar
Í báðum verkefnum voru stólar notaðir til að gefa rýmunum lit og náttúrulegur viður í stóru hlutverki
Í byrjun júlí 2020 settum við upp húsgögn í nýtt húsnæði Byggðastofnunar á Sauðárkróki, sjáðu stærri myndir hér að neðan:
Hjá Hafrannsóknastofnun var ljósa viðarklæðningin í timburhúsinu í aðal hlutverki. Fundarborð eru ýmist hvít eða grá. Fundar og gestarstólar litríkir, með mismunandi litum eftir hvaða hæð á við.
Að vinna að heiman er nýr veruleiki fjölda fólks þessa dagana
og nýjar aðstæður kalla á nýjar áskoranir. Ekki hafa allir aðgang að sérstöku
skrifstofuherbergi eða rými heima hjá sér og því er sófinn eða borðstofuborðið
ný vinnustöð hjá mörgum. Þar á ofan getur innivera dregið mikið úr því hvað við
hreyfum okkur mikið yfir daginn. Þetta saman getur haft neikvæð áhrif á líkama
okkar, líkamsstöðu og vellíðan.
Hér að neðan má finna nokkur gagnleg ráð til að bæta
líðan við fjarvinnu á þessum óvenjulegu tímum
Haltu þér fjarri sófanum
Flestir eru sammála að sófinn er versti staðurinn til að
vinna í til lengri tíma og hefur fljótt neikvæð áhrif á líkamsstöðu þína.
Þægilega tilfinningin getur verið blekkjandi og dregið úr vilja fólks til að
hreyfa sig og breyta um stöðu, sem mun bara gera illt verra. Ef þú hefur
nokkurn annan möguleika veldu þá eldhúsborðið frekar.
Notaðu réttan búnað
Það er ómögulegt að segja til um hve lengi þetta fjarvinnu
ástand varir og eru sumir farnir að spá því að það verði talið í mánuðum,
jafnvel meira áður en fólk fer að koma aftur til baka á skrifstofurnar. Fyrir fyrirtæki
og stofnanir þýðir þetta að sú vinnuaðstaða sem fólk er með heima hjá sér mun
hafa töluverð áhrif á vinnuframlag, líðan og heilsu starfsfólks.
Þessi vinnuaðstaða inniheldur:
Lyklaborð og mús
Að halla sér fram yfir fartölvu yfir langan tíma getur valdið
miklum skaða, svo lyklaborð og mús eru fljótleg leið til að bæta vinnuaðstöðuna.
Stillanlegan skrifborðsstól
Næst mikilvægasti búnaðurinn fyrir heilsuvæna vinnuaðstöðu er stillanlegur skrifborðsstóll, góður stóll hjálpar þér að halda réttri líkamsstöðu, ýtir undir hreyfanleika og eykur einbeitingu og þar með vinnuframlag.
Haltu þér á hreyfingu – að minnsta kosti á hálftíma fresti
Líkami þinn þráir hreyfingu og kyrrseta hefur verulega neikvæð áhrif á líkamsstöðu okkar og vellíðan. Að vinna að heiman felur í sér mun meiri einangrun og þar með hefur þú færri ástæður til þess að hreyfa þig. Það er því gott ráð að minna sig á að hreyfa sig eitthvað á hálftíma fresti. Þú þarft ekki að taka heila æfingu, það getur verið nóg að teygja úr þér og sérstaklega á hryggnum. Það gæti hjálpað að láta símann senda sér áminningu og reyna þá um leið að festa inn nýjar venjur.
Fáðu ferskt loft
Bættu fersku lofti inn í stuttu pásurnar. Kíktu út á
svalir, út í garð, upp á þak, út í glugga, mun gera helling fyrir þig.
Fáðu dagsbirtu
Það er alltof auðvelt þessa dagana að vera allan daginn
inni, svo ef þú getur fáðu smá d vítamín frá dagsbirtunni á meðan þú tekur þér
pásur.
Vertu í sambandi
Að vinna að heiman getur verið einmannaleg reynsla, svo
passaðu upp á að halda sambandi við vinnufélagana og fólkið í kringum þig. Nóg
er úrvalið af samskiptamiðlum og fjarfundarforritum, nýttu þau.
Stundaðu líkamsrækt
Þegar vinnudeginum er lokið er enn þá mikilvægt að hlúa
að líkamanum. Minni hreyfing þýðir að nú sem aldrei fyrr er enn meiri ástæða
til þess að hreyfa sig reglulega. Ef þú getur, farðu í göngutúr fyrir eða eftir
vinnu. Þú getur einnig nýtt þér fjöldan allan af þeim æfingum sem flæða nú yfir
frétta- og samfélagsmiðla.
Samantekt
Heimili okkar er oft ekki hannað fyrir vinnu, fylgdu
þessum fljótlegu ráðum til að bæta líðan þína við fjarvinnu:
-Notaðu mús og lyklaborð
-Notaðu stillanlegan skrifborðsstól
-Hreyfðu þig á 30 mínútna fresti
-Gættu þess að fá ferskt loft og dagsbirtu reglulega
-Haltu sambandi við vinnufélaga
-Stundaðu líkamsrækt daglega
Hjá skandinavíska fyrirtækinu Flokk finnur því fjölbreytt úrval skrifborðsstóla sem allir eiga eitt sameiginlegt að vera hannaðir til þess a styðja við líkama þinn við vinnu og ýta undir þína heilsu. Sjáðu skrifborðsstóla okkar hér en vörumerki frá Flokk eru Håg og RH stólar
Grein þýdd frá vefsíðu Flokk af Kristjáni Andra Jóhannssyni sölu- og markaðsfulltrúa EG Skrifstofuhúsgagna
Við hönnun á
skrifstofum nútímans þurfa hönnuðir að takast á við breytilegar þarfir fyrirtækja
á sama tíma og umhverfi er skapað sem styrkir við vörumerki fyrirtækisins. Vel hönnuð
rými geta verið drifkraftur nýsköpunar, eflt fyrirtækjamenningu og komið sýn
fyrirtækisins til skila.
En hvaða straumar
verða áberandi fyrir árið 2020 við hönnun á vinnustöðum?
Við litum aðeins yfir þróunina á árinu og hverju er verið að spá erlendis
Hér fyrir neðan koma nokkur mynstur sem við urðum vör við
Óformleg og opin félagsleg rými
Þróun sem heldur áfram, rými sem geta haft ýmsa notkunarmöguleika
Heilsuvæn húsgögn í fyrirrúmi
Hæðarstillanleg rafmagnsborð eru orðin staðalbúnaður og heilsuvænn skrifborðsstóll sem nýtist sem best með borðinu. Við spáum því að eftirspurnin eftir fleiri vörum sem hreyfa við þér í vinnu muni aukast
Náttúruleg eik og eikarlitur er að koma sterkur inn
Einnig höfum við fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir svörtum borðum og húsgögnum
Náttúran inn á skrifstofuna og að nýta náttúrulega lýsingu sem mest
Rannsóknir hafa sýnt að 47% starfsmanna telja að þau skorti náttúrulega lýsingu og það dragi úr þeim orku við vinnu
Hljóðvist skiptir sífellt meira máli í opnum rýmum
-Kristján Andri Jóhannsson sölu- og markaðsfulltrúi EG Skrifstofuhúsgagna
Sífellt fleiri
kjósa að vinna að heiman, hvort sem það er í fullu starfi eða hlutastarfi eða
sambland vinnu að heiman og á vinnustaðnum.
Meðal kosta þess
að vinna að heiman má nefna, meira frelsi og sveigjanleika, bætt jafnvægi milli
vinnu og einkalífs og sparnaður. Tala nú ekki um að geta drukkið kaffið úr
uppáhalds múmínbollanum
Svo að vinnan verði árangursrík og þægileg, er mikilvægt að skipuleggja skrifstofuna heima fyrir
Hér koma nokkur
ráð:
Veldu stað sem er
fjarri sjónvarpi og forðastu að hafa skrifstofuna á gangvegi, til að losna við
truflun
Hafðu birtustig í
huga, gott að horfa til náttúrulegrar birtu, líklegast er að þú þurfir að bæta
við lýsingu við skrifstofuaðstöðuna.
Komdu skipulagi á skrifborðið
Hafðu raftengi í huga, hvernig á að hlaða snjalltækin? (sjá hleðslulok hér) Hvert fara snúrurnar? Þarftu að hafa gat í borðinu? Kapalbakka undir eða fjöltengi undir borðinu? Vel skipulögð og stílhrein skrifstofuaðstaða býr til jarðveg fyrir árangursríka vinnu
Þegar þú hefur valið rýmið , þá er gott skrifborð og
góður skrifborðsstóll lykilatriði
Æskilegast væri að fá hækkanlegt skrifborð til að fá meiri fjölbreytni í líkamsstöðu og eins og til dæmis Ergolift rafmagnsborð. Hækkanleg borð hjálpa þér ekki aðeins að standa upp heldur hjálpa þér að hvíla axlir og herðar því að borð er stillt í rétta hæð, þ.e. að olnbogi sé í aðeins meira en 90 gráðum á borðinu þannig að handleggir hvíli á borðinu.
Hafðu í huga að augnhæð á að vera við efri hluta skjás. Til þess að svo megi vera er oft nauðsynlegt að vera með skjá festan við skjáhaldara sem er stillanlegur svo rétt hæð náist.
Veldu stól sem heldur þér á hreyfingu og fer vel með þig
Við val á skrifborðsstól er æskilegt að hafa fyrst og fremst heilsu þína í huga, oft eru skrifborðsstólar sem valdir eru heima fyrir ódýrari en á vinnustaðnum, þó er mikilvægt að vera með stól sem dregur ekki úr heilsu, líðan og vinnuframlagi. Veldu stól sem ýtir undir fjölbreytni og hreyfingu og er með stillanlega hæð á mjóbaki eða bakhæð og stillanlegri setudýpt til viðbótar við að vera hæðarstillanlegur. Þessir stillimöguleikar eru nauðsynlegir svo þú getir verið viss um að stóllinn passi þér. Dæmi um þannig stól frá okkur er Håg Futu, sem er einfaldari útgáfa af gæða stólum sem teknir eru á vinnustaði en engu er til sparað er varðar gæði og heilsu notandans. Håg Futu er einnig vinsæll sem aðal skrifborðsstóll fyrirtækja og stofnana.
Þú getur keypt þér skrifborðsstól fyrir um 30 þúsund krónur. Verði svoleiðis stóll fyrir valinu er allt eins líklegt að þú munir standa aftur á byrjunarreit að leita þér að nýjum stól innan tveggja ára. En hvað kostar góður skrifborðsstóll? Það er stóll sem endist og hjálpar þér að halda góðri setustöðu og á hreyfingu meðan setið er.
Of ódýrir skrifstofustólar geta verið dýrari til lengdar
Líklegt er að ódýrir skrifborðsstólar séu óvandaðir og passi þér ekki í stærð sem veldur því að stóllinn ýti undir ranga setustöðu. Slíkt til lengri tíma getur valdið krónískum stoðkerfisvandamálum og jafnvel breytt líkamsstöðu þinni til hins verra. Oft eru svoleiðis stólar ekki með samhæfða hreyfingu baks og setu sem þýðir bara eitt stóllinn mun halda þér í kyrrsetu. Kyrrseta hefur verið tengd við fjöldan allan af sjúkdómum svo sem hjartasjúkdóma, ýmsar tegundir af krabbameini og sykursýki 2. Rekja má kyrrsetu beint til 3,8% allra dauðsfalla í heiminum í dag.
6 eiginleikar sem einkenna góðan skrifborðsstól
Stuðningur við mjóbak
Hæðarstillanlegt bak eða stillanleg hæð á mjóbakspúða
Stillanleg setudýpt til að stilla rétt stuðning við mjóbak og stuðning undir læri
Stillanlega arma sem ættu að vera aftarlega til að þú komist sem næst borðinu
Samhæfð hreyfing baks og setu hvetur þig til hreyfinga
Lengri ábyrgð, helst um 10 ár, þú vilt fjárfesta í stól sem er ekki með vesen og er ekki að bila/slitna hratt.
Bónus: Til að stóllinn nýtist sem best er best að vera með hækkanlegt skrifborð
Svo þú getir hvílt olnboga í réttri hæð á borðinu miðað við setustöðu hverju sinni og í mismunandi hæð í setustöðu og svo þú getir staðið inn á milli.
Hvað kosta svona stólar almennt í dag?
Að meðaltali eru skrifborðsstólar sem uppfylla ofangreindar kröfur á 199.016 m vsk á markaðnum samkvæmt síðustu verðkönnun okkar þann 26.október 2020. Inn í verðkönnun okkar tókum við inn 23 skrifborðsstóla frá 5 mismunandi fyrirtækjum.* Stólar sem voru yfir 350.000 kr voru ekki teknir inn því slíkir stólar eru oft sérhæfðari og eftirspurn er minni eftir þeim.
Stólar sem við erum að selja og bendum á í þessu sambandi eru:
Í helgarblaði Fréttablaðsins 30.mars var fjallað um fimm sjálfbæra norræna stóla sem voru til sýnis á Hönnunarmars. Skrifborðsstóllinn Håg Capisco var þar fyrir hönd Noregs.
Hvað er svona umhverfisvænt við Håg Capisco?
Kolefnisfótspor við framleiðslu stólsins er aðeins um 45kg, ekkert lím eða hættuleg efni eru notuð, 48% úr endurunnum efnum og plastefni stólsins er endurunnið úr plasti sem kemur frá heimilum. Tímalaus hönnun yfir 30 ár á markaðnum, hægt að skipta um áklæði (með hjálp frá seljanda) og inniheldur fáa hluti sem auðvelt er að taka í sundur. Håg Capisco er einnig fyrsti skrifborðsstóllinn til að hljóta svansvottun.