Doublebooth Standard

PhoneAlone Síma- og fundarklefar fyrir vinnustaði framtíðarinnar.

Klefarnir eru framleiddir úr umhverfisvænum vottuðum hráefnum og trjám. Einföld skandinavísk hönnnun þar sem eru engar sýnilegar festingar eða skrúfur.

Klefarnir búa yfir einstakri aðlögunarhæfni og blandast auðveldlega inn í umhverfið sitt.

PhoneAlone sér um eigin vöruþróun og framleiðslu sem gerir þeim kleift að bjóða gæðavöru á samkeppnishæfu verði.

Klefarnir eru með 2 ára ábyrgð.

Verð er viðmiðunarverð en verð klefa getur breyst út frá valkostum. Hafið samband til að fá tilboð.

Sérpöntun, hafið samband fyrir nánari upplýsingar.

Lýsing

Doublebooth Standard Fundarklefar fyrir vinnustaði framtíðarinnar.

Fullkomið umhverfi fyrir tvo til að taka einbeitt samtöl og minni fundi í klefa sem er ekki fyrirferðamikill.

Doublebooth tekur aðeins 2 fermetra og er fullkomið rými til að taka einbeitt samtöl eða minni fundi en getur einnig verið ákjósanlegur sem eins manns skrifstofa. Klefinn er búinn fjórum hljóðlausum viftum sem tryggja loftgæði inni í klefanum og eru þær virkjaðar með hreyfiskynjara sem virkjar samtímis ljós og rafmagn í klefanum. Borðið í klefanum er komið fyrir á léttmálmteinum, þannig að hægt er að færa borðið til og breyta kassanum í vinnurými. 22 mm hljóðdempandi og eldtefjandi efni í innra rými klefans veitir áhrifaríka hljóðdempun. Þegar þú lokar hurðinni með segulþéttingu verður PhoneAlone þitt einkafundarherbergi sem gefur rými fyrir mikla einbeitingu og ótruflaða fundi.

Hreyfiskynjari
Rafmagn í klefanum er virkjað með hreyfiskynjara sem tryggir orkusparnað ef klefinn er ekki í notkun.

LED-lýsing
Hlýr loftslagsvænn ljósgjafi, með lítilli orkunotkun.

Hljóðdempun
Allt að 30 dB hljóðdempun

Hljóðeinangrun
Hljóðdempandi og eldtefjandi felt

Öryggisgler
Hert öryggisgler, sem samanstendur af tveimur lögum af gleri.

Stillanlegir fætur
Tryggir að básinn sé alltaf stöðugur og uppréttur.

Stillanleg loftræsting
Stillanlegar og hljóðlausar viftur með lítil orkunotkun.

Rafmagnstengi
Rafmagnstengi, USB tengi og Ethernet til að halda þér gangandi.

Sjálflokandi hurðar
Mjúklokandi hurðalamir loka hurðinni sjálfkrafa á eftir þér.

Mismunandi hönnun
Hvítt, grátt, ljós eik, svartur með viðarþiljum.

Renniborð
Hægt er að breyta básum í þitt eigið einkavinnurými.

Einföld uppsetning
Fjórir menn setja saman básinn á ca. 3-4 tímum.

Ármúli 22, 108 Reykjavík

Opnunartími 9-17 alla virka daga

533-5900

Vilt þú vera á póstlista?

Á póstlistanum okkar getur þú fengið upplýsingar um sértilboð og nýjar vörur sem voru að koma í hús.

© 2024 EG Skrifstofuhúsgögn